 |
 |
| Saga fyrirtækisins |
 |
Kjötvinnsla Sigurðar tók til starfa í nóvember 1989 í húsnæði Höfðakaffis við Vagnhöfða 11 í Reykjavík en 1991 flutti fyrirtækið á Smiðjuveg 36 í Kópavogi og er þá stofnað undir þeirri kennitölu sem fyrirtækið er rekið í dag.
Eigendur að þessu fyrirtæki voru hjónin Sigurður Ólafsson kjötiðnaðarmeistari og Ragnheiður Nielsen bankagjaldkeri og hafa þau ávallt unnið við fyrirtækið. Sigurður við kjötskurð og framkvæmdarstjórn en Ragnheiður meðal annars við bókhald og gjaldkerastörf.
Árið 1995 flutti fyrirtækið yfir götuna á Smiðjuveg 10 og fór þá úr 150 fm. húsnæði í 580 fm.
Árið 1998 seldu Sigurður og Ragnheiður helmingshlut í fyrirtækinu til svínabúsins að Brautarholti á Kjalarnesi.
Við söluna var ákveðið að skipta um nafn á fyrirtækinu og að nýja nafnið myndi verða Esja kjötvinnsla en kennitölunni ekki breytt
Í febrúar 2002 flutti fyrirtækið í sérhannað 1000 fm. húsnæði að Dugguvogi 8 í Reykjavík.
Helstu viðskipti Esju hafa verið á Reykjavíkursvæðinu en með tilkomu sölumanns á Vesturlandi hefur fyrirtækið bætt mikið við sig þar. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í þjónustu við mötuneyti, eldhús, veisluþjónustur, veitingahús, skóla, leikskóla, hótel, sumarhótel og veiðihús.
|
|
|
|
 |