Dugguvogi 8 | 104 Reykjavík | Sími 567 6640 | Fax 567 6614 | Tölvupóstur esja@esja.is       
Heim

Veftré | Fyrirspurnir | Leitarvél

Að halda veislu
Þegar halda skal veislu eru nokkur atriði sem vert er að gæta að og vil ég þar fyrst nefna að góður undirbúningur er lykillinn að vel lukkaðri veislu.

Best er að byrja á að ákveða gestafjöldann því matseðillinn er ákveðinn út frá fjölda gesta. Ef um fáa gesti er að ræða er hægt að hafa flóknari matseðil og þá einfaldari ef gestir eru margir.

Þegar fjöldi gesta og matseðill eru klár er að ákveða dagsetningu veislunnar og láta útbúa boðskort þar sem fram kemur tilefni veislu, hvenær á að mæta, hvar hún er haldin og hverjir bjóða til hennar. Best væri að senda út boðskort með u.þ.b. 20 daga fyrirvara því ekki er gott að bjóða of snemma og alls ekki of seint.

Þá er best að snúa sér að undirbúningi matseldarinnar. Byrjað er á að fara yfir allar uppskriftir og kanna hvað það þurfi mikið af hverju hráefni. Gott er að gefa sér góðann tíma í þetta og kaupa frekar örlítið meira inn en segir í uppskriftinni.
þetta er mjög gott að gera nokkrum dögum áður en veislan verður til að búa ekki til óþarfa stress.

Ef keypt er frosið kjöt er nauðsynlegt að láta það þiðna rólaga í kæli í nokkra daga og sem dæmi þá væri gott að láta lambalæri þiðna á 7 dögum í kæli og t.d nautainnralæri í eina 10 daga.
Nánari upplýsingar ætti kjötsalinn ykkar að geta gefið ykkur.






Spuni hugbúnaður © 2003
Veftré | Til baka | Upp