09.01.2011
Esja kjötvinnsla stækkar við sig
Um áramótin tók Esja kjötvinnsla ehf við rekstri Gæðafæðis ehf. Fyrirtækin verða rekin sem sjálfstæðar einingar fyrst um sinn.
Hugmyndin með kaupunum er að sameina fyrirtækin á árinu og styrkja þannig stöðu beggja á markaðnum.
Við vonumst til að viðskiptavinir fyrirtækjanna kunni að meta nýtt og vonandi betra fyrirtæki.
Bæði fyrirtækin hafa haft það að leiðarljósi að bjóða gæðavöru á góðu verði. Því munum við að sjálfsögðu halda áfram.
Allir helstu vöruliðir fyrirtækjanna munu halda áfram og jafnvel eitthvað nýtt og skemmtilegt bætast við.
|