top of page

Það er fátt eins einfalt og gott eins og nauta Rib-eye. Þessi klassíski réttur stendur alltaf fyrir sínu og með því að hægelda kjötið sous vide bráðnar það næstum því í munni. Þetta er fremur einföld eldamennska og hentar því vel í matarboð og slær alltaf í gegn. Gott er að hafa Hasselback kartöflur og gulrætur sem meðlæti.

Aðferð

Skref 1  Takið Rib-eye steikina úr kæli circa klst áður en á að fara að elda hana.

Skref 2  Stillið hitajafnarann á 58-59 gráður (mælt með). Fyrir miðlungs hrátt (54-57 gráður). Fyrir vel steikt (69 gráður eða meira).

Skref 3 Þegar vatnsbaðið hefur náð réttum hita, setjið steikina ofan í upprunalegum pakkningum og eldið í 90 min.

Skref 4 Eftir eldun er steikin tekin úr pakkninguni og þerruð létt með pappír og krydduð eftir smekk með grófu salti og pipar.

Skref 5 Panna er vel hituð eða þar til fer að rjúka úr henni, olía sett á og svo Rib-eyi steikin. Steikið á hvorri hlið í 3-4 min. Gott er að  setja 2-3 msk af smjöri, smá af rósmarin og hálfan hvítlauksgeira fljótlega eftir að steikin er komin á pönnuna.

Skref 6  Látið steikina hvíla í nokkrar mínútur eftir að hún kemur af pönnunni og berið svo fram.

canstockphoto27596243-netid.jpg
black-grunnur saelkera.jpg

Nautakjöt

steikarkrydd-mynd.jpg
black-grunnur saelkera.jpg

Eldunartími:          1:40 klst.

Undirbúningur:     60 mín.

Tilbúið eftir:          3:00 klst.

Eldunartími í sous vide

90 – 120 mín.

  • Miðlungs hrátt, 54-57 gráður

  • Miðlungs, 58-59 gráður ( Mæli með )

  • Vel steikt, 69 og hærra.

canstockphoto27596243-netid.jpg

Innihald

  • Rib-eye steik frá Esju

  • Olía og smjör til að steikingar

  • Hvítlauksgeiri

  • Rósmarín (ferskt)

  • Salt (gróft)

  • Pipar (úr kvörn)

Heimagert nautasoð er góður grunnur í ýmsa rétti, sósur og súpur. Hægt er útbúa soðið og geyma síðan í ísskáp eða frystir þar til á að nota það.

Aðferð

Skref 1  Beinin eru brúnuð í ofni þi 30 min á 200℃.

Skref 2  Laukur, gulrætur og celerystöngull er léttbrúnað í potti sem rúmar beinin.

Skref 3  Beinum er bætt í og tómatmaukinu, svo vatninu og kryddum. Passa að vatnið nái yfir beininn.

Skref 4  Látið malla í cirka 10 klst, en fleytið fituna sem myndast af regluglega og bætið í vatni eftir þörfum.

Skref 5  Siktið beinin frá og sjóðið soðið rólega niður um cirka helming þá ætti það að vera fullkomið til notkunar.

 
black-grunnur saelkera.jpg

Eldunartími:           11:00 klst.

Undirbúningur:     60 mín.

Tilbúið eftir:          12:20 klst.

nautasoð.jpg

Innihald

  • 2,5 kg Nautabein

  • 2-3 msk Olía

  • 3 stk Laukur

  • 2 stk Gulrætur

  • 2 msk Tómat mauk

  • 1 stk Sellerýstöngull

  • 1/2 búnt Timjan

  • 2 stk Lárviðarlauf

  • 10 stk Svört piparkorn

  •  ca . 5 lítrar Vatn

bottom of page